Gagnlegt efni á Zendesk:
- Providing multiple language support with dynamic content — Core reference for dynamic content
- Using placeholders — How to use placeholders in triggers, automations, macros
- Zendesk Support placeholders reference — Complete list of all available placeholders
- Translating ticket fields using dynamic content — Localizing field values with dynamic content
- Understanding Liquid markup and Zendesk Support — Advanced placeholder formatting with Liquid
Fjöltyngdur stuðningur og efnisstjórnun í Zendesk
Hvað er kvikt efni?
Kvikt efni (dynamic content) er eiginleiki Zendesk sem gerir þér kleift að búa til texta sem birtist á réttu tungumáli eftir tungumálastillingu viðskiptavinar eða notanda. Í stað þess að búa til aðskilda triggers eða makróa fyrir hvert tungumál, notar þú eitt kvikt efni sem skilar réttri útgáfu sjálfkrafa.
Hvers vegna nota kvikt efni?
- Fjöltyngdur stuðningur: Viðskiptavinir fá samskipti á sínu tungumáli.
- Samræmi: Einn staður til að breyta texta – breytingin tekur gildi alls staðar.
- Einfaldara viðhald: Færri triggers og makróar – ein regla notar kvikt efni í stað margra útgáfna.
- Fagleg samskipti: Samræmd orðanotkun í öllum sjálfvirkum skilaboðum.
Búa til kvikt efni
- Farðu í Admin Center → Workspaces → Agent tools → Dynamic content .
- Smelltu á Add item .
- Gefðu efninu heiti – t.d. „Staðfesting á móttöku erindis".
- Veldu sjálfgefið tungumál (default language) – yfirleitt íslenska.
- Skrifaðu sjálfgefinn texta – þetta er textinn sem birtist ef tungumálaafbrigði vantar.
- Bættu við afbrigðum (variants) fyrir önnur tungumál.
- Vista.
Tungumálaafbrigði (Variants)
Eftir að grunnefni er búið til geturðu bætt við afbrigðum:
- Opnaðu kvika efnið.
- Smelltu á Add variant .
- Veldu tungumál (t.d. English).
- Skrifaðu textann á viðkomandi tungumáli.
- Vista.
Dæmi: Staðfestingarskilaboð
| Tungumál | Texti |
|---|---|
| Íslenska (sjálfgefið) | Takk fyrir erindið. Við höfum móttekið beiðni þína og munum svara eins fljótt og auðið er. |
| Enska | Thank you for your request. We have received your inquiry and will respond as soon as possible. |
| Pólska | Dziękujemy za zgłoszenie. Otrzymaliśmy Twoje zapytanie i odpowiemy tak szybko, jak to możliwe. |
Nota kvikt efni
Hvert kvikt efni fær sjálfkrafa staðgengil (placeholder) á forminu:
{{dc.heiti_efnis}} Þennan staðgengil geturðu notað í:
- Triggers – í aðgerðum sem senda tölvupóst.
- Sjálfvirknireglur – í tilkynningum.
- Makróar – í svarsniðmátum.
- Tölvupóstssniðmátum – í stöðluðum sniðmátum.
Dæmi í trigger
Trigger NOTIFY - staðfesting á móttöku erindis (í flokki Sjúkratrygginga) notar aðgerðina:
Send email to requester:
{{dc.stadsfesting_a_mottoku}}
Kerfið lítur á tungumálastillingu viðskiptavinarins og sendir rétt afbrigði sjálfkrafa.
Skipulag kviks efnis
Athugið að heiti í dynamic content getur ekki verið með íslenskum stöfum. Eftir því sem kviku efni fjölgar þarf skipulag:
-
Nafnaregla: Notaðu sniðmátið
{heiti stofnunar} - {flokkur} - {lýsandi heiti}— t.d. „Sjúkra - Staðfesting á móttöku", „TR - Tilkynning um lokun". Skrifaðu alltaf lýsingu. - Flokkar: Hópaðu saman eftir notkun – staðfestingar, tilkynningar, áminntar, o.s.frv.
- Skjalið: Haltu lista yfir allt kvikt efni og hvar það er notað (triggers, makróar, o.s.frv.).
Breytur í triggers, makróum og sjálfvirknireglum
Hvað eru staðgenglar?
Staðgenglar (placeholders) eru breytur sem settar eru í texta og umbreytast sjálfkrafa í raunveruleg gildi þegar skilaboð eru send. Þeir eru skrifaðir á forminu {{breyta}} og notaðir í triggers, sjálfvirknireglum, makróum og tölvupóstssniðmátum.
Halló {{ticket.requester.first_name}}, takk fyrir erindið. verður að: „Halló Jón, takk fyrir erindið."
Helstu staðgenglar
Hér er placeholder biblían frá Zendesk!
Erindastaðgenglar (Ticket)
| Staðgengill | Skilar |
|---|---|
{{ticket.id}} |
Númer erindis |
{{ticket.title}} |
Titill erindis |
{{ticket.description}} |
Fyrsta skilaboð miða |
{{ticket.status}} |
Staða erindis |
{{ticket.priority}} |
Forgangur |
{{ticket.group.name}} |
Nafn grúppu sem erindi tilheyrir |
{{ticket.url}} |
Tengill á miða |
Beiðandastaðgenglar (Requester)
| Staðgengill | Skilar |
|---|---|
{{ticket.requester.name}} |
Fullt nafn beiðanda |
{{ticket.requester.first_name}} |
Fornafn beiðanda |
{{ticket.requester.email}} |
Netfang beiðanda |
{{ticket.requester.organization.name}} |
Stofnun beiðanda |
Notandastaðgenglar (Assignee)
| Staðgengill | Skilar |
|---|---|
{{ticket.assignee.name}} |
Nafn úthlutaðs notanda |
{{ticket.assignee.first_name}} |
Fornafn notanda |
{{ticket.assignee.email}} |
Netfang notanda |
Kviks efnis staðgenglar
| Staðgengill | Skilar |
|---|---|
{{dc.heiti_efnis}} |
Texti kviks efnis á réttu tungumáli |
{{dc.heiti}} staðgenglarnir eru sérstaklega öflugir vegna þess að þeir leysa bæði tungumálavandamál og samræmi í einu. Notaðu þá í stað harðkóðaðs texta í triggers og makróum.Hvar eru staðgenglar notaðir?
Í triggers og tímareglum
Þegar trigger eða sjálfvirkni sendir tölvupóst getur textinn innihaldið staðgengla:
Efni:
Erindi #{{ticket.id}} hefur verið móttekið Meginmál:
Halló {{ticket.requester.first_name}}, {{dc.stadsfesting_a_mottoku}} Erindi: {{ticket.title}} Númer: #{{ticket.id}}
Í makróum
Makróar geta notað staðgengla til að persónugera svör:
Halló {{ticket.requester.first_name}}, takk fyrir að hafa samband. {{dc.bida_svars}}
Í tölvupóstssniðmátum
Stöðluð sniðmát (email templates) nota staðgengla til að sýna rétt erindanúmer, nöfn og stöðu.
Bestu venjur
1. Notaðu kvikt efni frekar en harðkóðaðan texta
Í stað þess að skrifa beint í trigger:
❌ Takk, við höfum móttekið erindið þitt.
Notaðu kvikt efni:
✅ {{dc.stadsfesting_a_mottoku}}
Þannig geturðu breytt textanum á einum stað og stutt mörg tungumál.
2. Athugaðu hvort staðgengill skilar gildi
Ef staðgengill vísar í reit sem er tómur, skilar hann tómum streng. Þetta getur leitt til stakra skilaboða eins og: „Halló , takk fyrir erindið."
{{ticket.assignee.name}} skilar tómu ef erindi er ekki úthlutað. {{ticket.requester.first_name}} skilar tómu ef fornafn er ekki skráð. Hugsaðu um jaðartilvik.3. Prófaðu alltaf
Sendu prófunartölvupóst úr sandbox og staðfestu að allir staðgenglar leysi rétt. Athugaðu:
- Leysa staðgenglar í rétt gildi?
- Vantar einhver gildi (tómir strengir)?
- Er rétt tungumálaafbrigði valið fyrir kvikt efni?
4. Notaðu Liquid markup fyrir flóknari rökfræði
Zendesk styður Liquid markup í sniðmátum, sem gerir kleift að bæta við skilyrðum:
{% if ticket.assignee.name != blank %}Úthlutað á: {{ticket.assignee.name}}{% endif %}
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.