Gagnlegt efni á Zendesk:
- Organizing and managing your macros — Categorizing, sorting, and managing macros
- Creating macros for repetitive ticket responses and actions — Creating shared and personal macros
- Can agents create shared macros? — Permissions for shared vs. personal macros
- Building macro action statements — Configuring what macros do (set fields, add comments, etc.)
- Macros resources — Curated collection of macro-related articles
Hvernig á að búa til flýtitexta (macros) sem spara teyminu tíma og tryggja samræmi
Hvað er fjölvi?
Fjölvi (macro) er ekki bara flýtitexti heldur safn aðgerða sem framkvæmast með einum smelli. Í stað þess að skrifa sama texta, breyta sömu reitum og velja sömu stöðu í hvert skipti — gerir makró allt þetta í einu.
Hugsaðu um makró eins og uppskrift: öll skrefin eru skráð og fara af stað sjálfkrafa þegar þú velur hana.
(1) bætt við kveðjutexta,
(2) stillt stöðu á „Opið",
(3) bætt við merki „Móttekin" — allt með einum smell.
Hvenær á að búa til makró?
Búðu til makró þegar:
- Þú eða teymið endurtakið sömu aðgerðina oft (3+ sinnum á viku).
- Þú vilt tryggja samræmi í svörum eða sömu leiðbeiningar.
- Nýir teymismeðlimir þurfa leiðsögn um hvernig á að svara tilteknum erindum.
- Ferli krefst margra skrefa sem auðvelt er að gleyma.
Búa til makró — skref fyrir skref
- Farðu í Admin Center > Workspaces > Agent tools > Macros .
- Smelltu á „Add macro" .
- Gefðu makrónni lýsandi nafn — t.d. „Staðfesting – Beiðni móttekin".
- Bættu við aðgerðum (actions):
- Comment/description: Bæta við texta í svar eða athugasemd.
- Status: Breyta stöðu erindis.
- Priority: Stilla forgang.
- Tags: Bæta við eða fjarlægja merki.
- Assignee: Úthluta á grúppu eða notanda.
- Type: Stilla tegund erindis.
- Stilltu aðgang — persónulegt eða deilt með grúppu.
- Vistaðu.
Staðgengilstextar í makróum
Makróar geta notað staðgengla (placeholders) til að setja inn kvik gögn sjálfkrafa:
-
{{ticket.requester.first_name}}— Skírnarnafn beiðanda. -
{{ticket.id}}— Númer erindisins. -
{{current_user.first_name}}— Nafn þess sem notar makróna.
Forskrifaður texti eða þýðing (Dynamic content)
Í stað þess að útbúa makróa bæði á íslensku og ensku er hægt að nýta Dynamic Content í Zendesk til að skrifa bæði enska og íslenska útgáfu. Kerfið setur þá rétta textann inn eftir því tungumáli sem miðinn er á.
Athugið að þetta á ekki bara við um þýðingar, því ef teymi er t.d. með texta sem hægt er að nota við mismunandi tilefni, þá er líka hægt að nota dynamic content til að spara vinnu. Nánar er fjallað um þetta í öðrum hluta námskeiðsins.
Dæmi um nytsamlegaa fjölva
| Nafn | Aðgerðir | Tilgangur |
|---|---|---|
| Færa á Sjúkratryggingar | Texti + staða: Opið + brand: Sjúkra + grúppa: sjúkra | Senda erindi til Sjúkratrygginga |
| Beðið eftir upplýsingum | Texti + staða: Í bið | Biðja um viðbótarupplýsingar |
| Leyst – almenn lausn | Texti + staða: Leyst | Loka erindi með kveðju |
| Færa til kerfisstjóra | Grúppa: Kerfisstjórar + merki + innri athugasemd | Flytja tæknilegt mál |
Bestu starfsvenjur við skipulagningu og viðhald teymisfjölva
Skipulag fjölvasafns
Eftir því sem fleiri fjölvar bætast við getur listinn orðið algjör ruslakista. Gott skipulag er nauðsynlegt frá byrjun.
Nafnareglur
Makróar í Þjónustukerfinu fylgja ákveðnu nafnasniði — tvípunktar ( :: ) aðskilja flokka:
{yfirflokkur}::{undirflokkur ef við á}::{aðgerð}
Auðkenning::Netspjall skref 1Fjármál::Innheimta::ViðbótarfresturLokun::Almenn lausnSamningar::Eldri samningar::Samningur endurnýjaður
Stilltu makróar á viðeigandi grúppur og notaðu knippi (::) til að auðvelda notkun. Alltaf skrifa lýsingu á makróna — annars veit enginn hvenær á að nota hana.
:: ) virka snilldarlega í Zendesk vegna þess að kerfið raðar fjölvum oftast í stafrófsröð. Allar fjölvar undir sama yfirflokki knippast þá sjálfkrafa saman.Hvað þarf ég að hugsa um?
- Hve margir: Það er ómögulegt að segja, en ef þeir eru mjög margir mætti skoða að nýta sér þekkingargrunn Zendesk til að hjálpa til við að svara.
- Persónulegar makróar: Ekki nota þá! Búum til góða makróa saman. Annars svarar hver með sínu nefi og ekkert samræmi er á svörum auk þess sem mikilvæg þekking tapast.
- Varúð: Of margir fjölvar = enginn notar þá. Ef fólk finnur ekki rétta fjölva fjlótt, skrifar það textann handvirkt.
Persónulegar vs. sameiginlegar
| Tegund | Hverjir sjá | Hvenær nota |
|---|---|---|
| Persónulegai | Aðeins skaparinn | Helst bara aldrei |
| Grúppu | Teymismeðlimir | Algeng svör og ferli teymisins |
| Allir | Allir notendur | Aðallega til að færa á milli stofnana - þetta sjá kerfisstjórar um. |
Viðhald fjölva
Fjölvar þarfnast reglulegrar endurskoðunar — annars safnast upp gamlar og rangar makróar sem enginn treystir sér í.
Mánaðarlegt viðhald
- Eru þeir allir enn í notkun? Eyddu þeim sem enginn notar.
- Er textinn réttur og uppfærður? (T.d. ef vefslóðir breytast.)
- Vantar nýja? Hefur teymið verið að endurtaka svör sem vert er að gera fjölva fyrir?
Þegar ferlar breytast
- Nýr reitur á eyðublaði — þarf einhver makró að uppfærast?
- Grúppur eða teymi breytist — eru stillingar réttar?
- Stefna stofnunar breytist — endurspegla þeir réttan tón og boðskap?
Kynning á fjölvum fyrir teymið
Makróar eru gagnslausar ef enginn veit af þeim. Þegar þú býrð til nýjan:
- Tilkynntu á teymisfundi eða í teymisrás.
- Útskýrðu hvenær á að nota og hvað hann gerir.
- Sýndu dæmi — keyrðu þá á prufuerindi.
- Biddu um endurgjöf eftir viku og lagaðu ef þarf.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.