Gagnlegt efni á Zendesk:
- Managing ticket triggers — How to reorder, sort, and manage triggers
- Creating categories to organize ticket triggers — Using trigger categories for organization
- Fine Tuning: How to build your ideal workflow — Best practices for ordering business rules
- Ticket trigger recipes reference — Best practices and recipes for triggers
Opinberar nafnareglur Stafræns Íslands
Hvers vegna nafnareglur skipta máli
Þjónustukerfið er sameiginlegt tæki með fjölmörgum notendum í mismunandi stofnunum. Án reglna verður listi yfir triggera, makróa og annað ólæsilegur, villuleit erfið og enginn veit hver á hvað.
Aðalreglan er einföld:
Triggers — flokkur og forskeyti
Triggers hafa sérstaka nafnareglu sem nýtir flokka (categories) og forskeyti í nafni:
{nafn stofnunar} Nafn:
{forskeyti} - {lýsandi heiti}
Þetta þýðir að þú setur triggerinn í flokk sem ber nafn stofnunarinnar (t.d. „Sjúkratryggingar" eða „Sýslumenn"). Nafn triggersins sjálfs byrjar svo á forskeytinu sem segir hvað hann gerir .
Forskeytisreglur
Þrjú forskeyti eru notuð og hvert um sig segir til um tegund aðgerðar:
| Forskeyti | Notkun | Dæmi |
|---|---|---|
SET |
Breytir eiginleikum miðans — stöðu, forgangi, reitum, merkjum | SET - opnar pending miða við svar |
ASSIGN |
Kemur miðanum á réttan stað — grúppu, notanda | ASSIGN - póstar á island@island.is sendir á grúppuna Ísland.is |
NOTIFY |
Sendir svarpósta, tilkynningar, webhooks | NOTIFY - sjálfvirkt svar við erindi á þjónustuver |
Hvers vegna forskeyti?
Forskeytið gerir þér kleift að sjá í einni svipan hvað triggerinn gerir — án þess að opna hann. Þegar þú ert að leita að trigger sem breytir stöðu veistu strax að leita að „SET -" í nafninu. Þegar eitthvað fer úrskeiðis í úthlutun leitarðu að „ASSIGN -". Einfalt. Við röðum triggerum líka í röð eftir forskeytunum, SET efst, svo ASSIGN og neðst NOTIFY.
Dæmi um triggers eftir stofnunum
| Flokkur (category) | Nafn trigger | Útskýring |
|---|---|---|
| Sjúkratryggingar | SET - opnar pending miða við svar |
Breytir stöðu í Open þegar viðskiptavinur svarar |
| Sjúkratryggingar | ASSIGN - erindi frá sjukra@sjukra.is á Sjúkra-grúppu |
Beinar erindi á rétta grúppu eftir netfangi |
| Ísland.is | NOTIFY - sjálfvirkt svar við erindi á þjónustuver |
Sendir staðfestingarpóst á viðskiptavin |
| TR | SET - hækkar forgang á fjölskyldumálum |
Sjálfvirk forgangsbreyting eftir tegund |
| HAGS | NOTIFY - tilkynning á yfirmann um bráðamál |
Sendir tilkynningu þegar erindi er merkt brýnt |
Dæmi um slæm nöfn
| Slæmt nafn | Vandamál |
|---|---|
Trigger 1 |
Enginn tilgangur, ekkert forskeyti, enginn flokkur |
Senda tölvupóst |
Til hvers? Á hvern? Frá hvaða stofnun? Vantar NOTIFY forskeyti. |
Nýtt |
Ekkert samhengi — ómögulegt að viðhalda |
Guðrún bað um þetta |
Persónutengt, ekki lýsandi, hver er Guðrún og hvar er hún??? |
Nafnareglur fyrir aðrar reglur
Hér eru nafnareglurnar fyrir allt annað í Þjónustukerfinu — sumsé, ekki bara triggers:
| Tegund | Sniðmát | Dæmi |
|---|---|---|
| Yfirlit (View) | Hér verða ekki sértækar reglur, en við hvetjum til að flokka með að nota "::" |
TR::Fjölskyldumál Vegabréf::Neyðarvegabréf Leyfi ::Bíða svars
|
| Makró | {yfirflokkur}::{undirflokkur}::{aðgerð} |
Auðkenning::Netspjall skref 1 Fjármál::Innheimta::Viðbótarfrestur
|
| Sjálfvirkni (Automation) | {nafn stofnunar} - {lýsandi heiti} |
HAGS - hnippa í viðskiptavin vegna pósts |
| Eyðublað (Form) | {heiti stofnunar} - {lýsandi heiti} |
Sýslumenn - Almenn fyrirspurn |
| Reitir (Field) | Ekki sértækar reglur en nauðsynlegt að skrifa lýsingar til að tilgreina hverjir nota reitinn. | |
| Annað (grúppur, SLA, schedules, skýrslur) | {heiti stofnunar} - {lýsandi heiti} |
Fjársýslan - SLA viðvörun , Sjúkra - Vinnutímaskýrsla
|
:: ) til aðgreiningar, en triggers, sjálfvirknireglur, eyðublöð og annað nota bandstrik ( - ). Þetta er ekki af handahófi — tvípunktarnir búa til knippi í Zendesk viðmótinu.Lýsing (Description) — alltaf skrifa hana
Þetta er kannski mikilvægasta reglan: alltaf skrifa lýsingu . Á öllum reglum, yfirlitum, makróum — öllu. Lýsingin á að innihalda:
- Hvað reglan gerir og af hverju
- Dagsetning og hver bjó hana til
- Tengsl við aðrar reglur ef við á
Dæmi um lýsingu:
„Þegar nýtt erindi berst frá Sjúkratryggingum í gegnum tölvupóst er því sjálfkrafa úthlutað á Sjúkra-grúppuna. Tengist: SET - opnar pending miða við svar. Búið til af ÁSG, nóv 2025."
Lýsingin er fyrir alla — nýja starfsmenn, aðra KS, útgáfuteymi. Ef þú átt erfitt með að skrifa lýsingu á reglu, þá er reglan kannski of flókin og þarf að einfalda.
Styttingar á stofnunum
Notaðu samþykktar skammstafanir eða styttingar (KS ákveður þær). Aðalatriðið er að nota sömu heiti í sama flokki. Hér eru nokkrar sem eru í notkun:
- TR — Tryggingastofnun ríkisins
- Sjúkra — Sjúkratryggingar Íslands
- HAGS — Hagstofa Íslands
- Ísland.is — Stafrænt Ísland
Viðhald og endurskoðun
Nafnareglur hjálpa ekki aðeins við stofnun heldur einnig viðhald:
- Reglulega: Farðu yfir triggers stofnunarinnar — eyða óvirkum, uppfæra úreltar.
- Leit: Gott nafnasnið gerir leit auðveldari — flokkurinn sýnir stofnun, forskeytið sýnir tegund aðgerðar.
- Skipti á starfsfólki: Nýr KS skilur strax tilgang reglu ef nafn og lýsing eru skýr.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.