Gagnlegt efni á Zendesk support:
- About Zendesk sandbox environments — Overview of standard and premium sandboxes
- Testing changes in your standard sandbox — How to use a standard sandbox for testing
- Creating a premium sandbox with data replication — Setting up premium sandbox with production data
- Working with premium sandboxes — Managing and using premium sandboxes
Örugg prófun áður en breytingar fara í notkun
Hvað er þróunarumhverfi?
Þróunarumhverfi (sandbox) er afrit af raunhverfi þar sem þú getur prófað breytingar án þess að hafa áhrif á raunverulega þjónustu.
Allar breytingar sem KS gerir eiga að byrja í sandbox. Þetta er grunnregla stjórnkerfisins og forsenda þess að breytingabeiðni sé samþykkt.
Aldrei breyta trigger og tímareglum beint í raunumhverfi. Eina undantekningin er neyðartilvik þar sem kerfisstjórar (system admins) birta beint – og það er þeirra ábyrgð, ekki KS
Hvað endurspeglar sandbox?
Sandbox inniheldur afrit af helstu stillingum framleiðsluumhverfis:
| Þáttur | Afritað í sandbox | Athugasemd |
|---|---|---|
| Triggers | ✅ Já | Allar virkjareglur |
| Sjálfvirknireglur | ✅ Já | Allar sjálfvirknireglur |
| Sérsniðnir reitir | ✅ Já | Allar reitaskilgreiningar |
| Eyðublöð | ✅ Já | Öll erindaeyðublöð |
| Makróar | ✅ Já | Allar makróar |
| Yfirlit | ✅ Já | Öll yfirlit |
| Kvikt efni | ✅ Já | Allt kvikt efni og afbrigði |
| Raunveruleg erindi | ❌ Nei | Sandbox inniheldur ekki framleiðsluerindi |
| Raunverulegar tilkynningar | ❌ Nei | Tölvupóstar fara ekki á raunverulega viðtakendur |
Mikilvægt: Sandbox er ekki lifandi afrit sem uppfærist stöðugt. Það er mynd sem er samstillt reglulega.
Reglubundin samstilling
Sandbox er samstillt við framleiðsluumhverfi reglulega (yfirleitt vikulega eða eftir þörfum). Samstillingin:
- Uppfærir sandbox með nýjustu stillingum úr framleiðslu.
- Skrifar yfir breytingar í sandbox sem hafa ekki verið birtar í framleiðslu.
- Endurstillir prófunargögn – erindi sem þú bjóst til í sandbox hverfa.
Varúð: Ef þú hefur óbirtar breytingar í sandbox og samstilling keyrir, glatast þær breytingar . Tryggðu að breytingabeiðni sé send áður en næsta samstilling er framkvæmd. Ef þú þarft meiri tíma, hafðu samband við kerfisstjóra.
Aðgangur að sandbox
Kerfisstjórar stofnana fá aðgang að sandbox í gegnum sérstaka vefslóð. Sandbox vefslóðin er yfirleitt á forminu:
https://digitaliceland[ægileg númeraruna].zendesk.com SSO er notað við innskráningu.
Bestu venjur í sandbox
1. Prófaðu ítarlega
- Búðu til prufumiða sem uppfylla skilyrði reglna.
- Búðu til prufumiða sem eiga ekki að ná reglum – neikvæð prófun.
- Skoðaðu Events log á hverju erindi.
3. Skjalfesta breytingar
- Notaðu lýsingarreiti í triggers og tímareglum.
- Haltu lista yfir breytingar sem þú hefur gert (til að setja í breytingabeiðni).
4. Ekki taka sandbox sem sjálfsagðan hlut
- Sandbox er sameiginlegt umhverfi – aðrir vinna þar líka.
- Ekki eyða reglum annarra stofnana.
- Allt sem þú gerir nema miðar eru sýnileg öðrum notendum.
Takmarkanir
- Ekki 100% eins: Sumar samþættingar (integrations) virka ekki í sandbox. Prófaðu samþættingar sérstaklega.
- Tölvupóstur: Sandbox er með afskræmd þjónustunetföng sem hægt er að senda á í stað hinna almennu.
- API-takmarkanir: Sumar API-aðgerðir eru takmarkaðar í sandbox.
- Tímasetning sjálfvirkni: Sjálfvirknireglur keyra á sama klukkutíma fresti og í framleiðslu, en gætu tekið lengri tíma.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.