Gagnlegt efni á Zendesk:
- Testing changes in your standard sandbox — Testing business rules in sandbox
- Analyzing your business rules — Reviewing and auditing existing rules
- Fine Tuning: How to build your ideal workflow — Best practices for workflow design and testing
- Testing messaging in your sandbox — Testing messaging-specific configuration
Próufumiðar, jaðartilvik og villuleit
Hvers vegna prófa ítarlega?
KS ber ábyrgð á reglum sínum. Breytingabeiðni er fyrirmæli um birtingu. Útgáfuteymi treystir á að reglan hafi verið prófuð. Ef ófullnægjandi prófun veldur villum í framleiðslu er það mjög óheppilegt og getur kallað á að útgáfa verði bakfærð í heild sinni.
Prófunaraðferð: Jákvætt og neikvætt
Jákvæð prófun (Positive testing)
Búðu til erindi sem á að uppfylla skilyrði reglunnar. Staðfestu:
- Keyrir reglan?
- Framkvæmir hún réttar aðgerðir?
- Eru niðurstöður eins og búist var við?
Neikvæð prófun (Negative testing)
Búðu til erindi sem á ekki að uppfylla skilyrði reglunnar. Staðfestu:
- Keyrir reglan ekki ?
- Eru aðrar reglur ótruflaðar?
Jaðartilvik (Edge cases)
Jaðartilvik eru aðstæður sem eru á „mörkum" reglunnar. Þetta eru algengustu uppsprettur vandamála:
| Jaðartilvik | Dæmi | Hvað getur farið úrskeiðis |
|---|---|---|
| Tómur reitur | Beiðandi hefur ekki stofnun | Trigger sem skilyrðir stofnun keyrir ekki |
| Margir triggers | Tveir triggers breyta sama reit | Seinni trigger skrifar yfir þann fyrri |
| Röðunarvandamál | Trigger A breytir stöðu, trigger B skilyrðir gamla stöðu | Trigger B keyrir ekki |
| Endurtekinn trigger | Trigger bætir við merki sem virkjar annan trigger | Keðjuverkandi reglur |
| Tímasetning sjálfvirkni | Erindi rétt undir tímamörkum | Keyrir of snemma eða of seint |
| Tungumál vantar | Kvikt efni á ekki afbrigði á tungumáli beiðanda | Sjálfgefinn texti sendur |
Events log – besta prófunartækið
Events log á hverju erindi sýnir nákvæmlega hvaða reglur keyrðu og í hvaða röð. Þetta er ómissandi tæki við villuleit.
- Opnaðu erindið í sandbox.
- Smelltu á Events (eða „Conversations → Events" eftir útgáfu).
- Skoðaðu lista yfir alla atburði – triggers, sjálfvirknireglur, handvirkar breytingar.
- Athugaðu röð atburða – keyra reglur í réttri röð?
- Leitaðu að óvæntum atburðum – keyrir eitthvað sem á ekki að keyra?
Prófunarskjal
Skráðu allar prófanir í skjal sem fylgir breytingabeiðni. Þetta eykur traust og hraðar yfirferð. Dæmi um prófunarskjal:
| Prófun | Aðstæður | Væntar niðurstöður | Raunverulegar niðurstöður | Staða |
|---|---|---|---|---|
| Jákvætt 1 | Nýtt erindi frá HSA, stöðu New | Trigger úthluta á tækniteymi | Rétt – tækniteymi fékk erindið | ✅ |
| Neikvætt 1 | Nýtt erindi frá Ráðuneytinu | Trigger keyrir EKKI | Rétt – engin breyting | ✅ |
| Jaðartilvik 1 | Erindi án stofnunar | Trigger keyrir EKKI | Rétt – engin breyting | ✅ |
| Röðun | Tvö erindi í röð | Báðir triggers keyra rétt | Rétt – Events log staðfestir | ✅ |
Prófa tímareglur
Tímareglur er erfiðara að prófa vegna ... tíma:
- Stytta tíma: Settu tímaskilyrði á 1 klst í sandbox til prófunar.
- Bíddu: Sjálfvirkni keyrir á u.þ.b. klukkutíma fresti – búðu til prufumiða og bíddu.
- Events log: Skoðaðu hvort sjálfvirknin birtist í atburðaskrá.
- Endurstilltu tíma: Mundu að breyta tímaskilyrðinu aftur í raunverulegan tíma áður en þú sendir breytingabeiðni.
Villuleit (Troubleshooting)
Ef regla keyrir ekki eins og búist var við:
- Athugaðu skilyrði: Eru öll ALL-skilyrði sönn? Er a.m.k. eitt ANY-skilyrði satt?
- Athugaðu röðun: Hefur annar trigger breytt stöðu eða reit áður en þinn trigger kemur að?
- Athugaðu merki: Er merki þegar til staðar sem kemur í veg fyrir endurtekna keyrslu?
- Skoðaðu Events log: Hvaða reglur keyrðu á erindinu?
- Einfaldaðu: Fjarlægðu skilyrði þar til trigger keyrir, bættu síðan við skilyrðum einu í einu.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.